Átta látnir í Kenía

Lögreglan í Kenía að störfum.
Lögreglan í Kenía að störfum. AFP

Átta lík hafa verið flutt á líkhúsið Nairobi, höfuðborg Kenía, eftir óeirðirnar sem brutust út þegar í ljós kom að Uhuru Kenyatta hefði náð endurkjöri sem forseti landsins.

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar hélt því fram að átt hefði verið við niðurstöðurnar.

Líkin fundust í hverfunum Mathare, Kibera og Kawangware, samkvæmt heimildamanni AFP.

Slasaður mótmælandi.
Slasaður mótmælandi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert