Bifreið ekið á fólk í Virginíu

Bifreið var ekið inn í hóp fólks á mótmælafundi í Virginíuríki, þar sem komið hafði til átaka á milli þjóðernissinna og þeirra sem mættu til að mótmæla stefnu þeirra. Lögregla á staðnum segir marga slasaða eftir atvikið.

Vitni segir í samtali við fréttastofu AFP að að minnsta kosti tugur fólks hafi særst við áreksturinn, sem muni hafa verið viljandi gerður af hálfu bílstjórans. Stúlka ein hafi þannig verið illa útleikin eftir að bílnum var bakkað og svo ekið aftur á hópinn.

Blaðamaður AFP sá þá slasað fólk á jörðinni og enn aðra grátandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert