Fimm manns, þar á meðal tvær ungar skátastúlkur, létust á tjaldsvæði í morgun þegar mikið óveður gekk yfir Pólland.
Stúlkurnar, sem eru 13 og 14 ára, létust þegar tré féllu á tjöld þeirra er þær sváfu. Um 20 börn til viðbótar slösuðust á svæðinu en þar höfðu 140 skátar komið saman í þorpinu Suszek í norðurhluta Póllands.
Kona lést einnig þegar tré féll á hús hennar í þorpinu Konarzyny, auk þess sem maður sem hafði sofið í tjaldi í nærliggjandi þorpi eftir að tré féll á tjald hans.
Að sögn yfirvalda á sama svæði lést fimmta manneskjan, 48 ára karlmaður, þegar tré féll á hann.
Alls slösuðust 28 manns í óveðrinu. Rafmagnið var tekið af um hálfri milljón heimila. Auk trjánna sem féllu þá fuku þakplötur víða um norðan- og sunnanvert landið.
Hitabylgja hefur verið í Póllandi undanfarna daga og hefur hitinn farið töluvert yfir 30 gráður.
The craziest weather in Poland tonight, a tornado followed by a mad electrical storm !! #scary #polandweather #storm #polskistorm pic.twitter.com/A7SSGVX3R2
— Jason Fubar (@jasonfubar) August 11, 2017