Lífshættulega særðir í Malmö

Lögregla að störfum í Malmö. Mynd úr safni.
Lögregla að störfum í Malmö. Mynd úr safni. AFP

Að minnsta kosti þrír eru særðir, þar af tveir lífshættulega, eftir að maður hóf skothríð í samkomusal í Malmö seint í nótt. Um 70 manns voru saman komnir í mannfögnuði í húsinu þegar skotunum var hleypt af, samkvæmt umfjöllun sænska ríkissjónvarpsins, SVT.

Er þar hermt eftir vitnum að ringulreið hafi skapast þegar fólk reyndi að flýja salinn í skothríðinni.

Samkomusalurinn er í miðborg Malmö, á svæði þar sem ofbeldi er ekki sjaldgæf sjón.

„Bara hér [í samkomusalnum], varð alvarleg skotárás fyrr á árinu þegar ungur maður var skotinn,“ segir Mikael Nilsson, fréttamaður SVT sem er á staðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert