Big Ben hljóður til ársins 2021

Big Ben er sögufrægt kennileiti Lundúna.
Big Ben er sögufrægt kennileiti Lundúna. AFP

Klukknahljómur Big Ben í London mun óma í síðasta sinn um miðjan dag í dag. Turnklukkunum verður svo ekki hringt reglulega á ný fyrr en árið 2021.

Miklar viðgerðir standa yfir á þessu sögufræga kennileiti Lundúnaborgar. Klukkurnar í Big Ben hafa slegið á klukkutímafresti í 157 ár en þó með örfáum hléum. Það síðasta var gert árið 2007 og þar á undan þögnuðu þær í nokkra mánuði á árunum 1983-1985.

Í frétt BBC segir að aftengja verði klukkurnar nú til að skapa heilsusamlegt vinnuumhverfi fyrir verkamennina sem eru að hefja viðgerðir á turninum. 

Ákveðið hefur verið að tengja klukkurnar aftur í tilefni stórviðburða, s.s. á gamlárskvöld til að hringja inn nýja árið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert