Barinn fyrir að vera kínverskur

Maður í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð …
Maður í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð á kínverskum framhaldsnema. Hópur fjögurra réðist að honum og barði hann með hafnaboltakylfu og skiptilykli vegna uppruna hans. AFP

Dómari í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum hefur dæmt 21 árs gamlan mann í lífstíðarfangelsi fyrir að berja kínverskan framhaldsnema til dauða.

Andrew Garcia er annar einstaklingurinn til þess að vera dæmdur í máli Xinran Ji, 24 ára gamals rafmagnverkfræðinema við Háskólann í Suður-Kaliforníu, sem lést eftir að hópur manna réðst á hann með hafnaboltakylfu og skiptilykli.

Atvikið átti sér stað þegar Ji gekk heim eftir að hafa verið í leshóp í lok júlí. Honum tókst að flýja en fannst látinn á heimili sínu nokkrum klukkustundum síðar.

Tveir árásarmannanna bíða enn eftir réttarhöldum í málinu en saksóknarar segja að þeir hafi ráðist á Ji vegna þess að hann var kínverskur og þeir héldu að hann væri með reiðufé á sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert