„Hetjan“ rændi greiðslukorti

Chris Parker.
Chris Parker.

Heimilislaus maður, sem var kallaður hetja fyrir að aðstoða fólk eftir hryðjuverkaárásina í Manchester Ar­ena tónleikahöllinni í maí, hefur nú verið ákærður fyrir að hafa rænt greiðslukorti á vettvanginum. Sky fréttastofan greinir frá.

Hinn 33 ára gamli Chris Parker var í anddyri tónleikahallarinnar eftir tónleika Ariana Grande þann 22. maí sl. þegar Salman Abedi sprengdi sig í loft upp. 22 létu lífið og 59 særðust í árásinni.

Parker sagði í samtali við fjölmiðla eftir árásina að í stað þess að flýja hafi hann ákveðið að hjálpa fólki. Aðstoðaði hann meðal annars unga stúlku og hlúði að konu sem lést í örmum hans. 

Í kjölfarið var sett af stað söfnun fyrir Parker á hópfjármögnunarsíðunni GoFundMe, þar sem yfir 50 þúsund pund söfnuðust, eða yfir sjö milljónir króna. Talsmaður síðunnar hefur nú sagt að fylgst sé náið með málinu á hendur Parker, og öll fjárframlög séu örugg á síðunni. Hefur hann hvatt alla sem hafa áhyggjur af framlagi sínu til að hafa samband við síðuna.

Frá vettvangi fyrir utan Manchester Arena í maí.
Frá vettvangi fyrir utan Manchester Arena í maí. AFP

Lögreglan í Manchester hefur sagt að Parker hafi verið ákærður fyrir tvö þjófnaðarbrot í tengslum við greiðslukort sem rænt var í tónleikahöllinni þann 22. maí. 

Parker hafði oft áður komið í anddyri hallarinnar til að betla pening eftir tónleika. „Ég sá litla stelpu [...] hún var ekki með fæt­ur. Ég vafði hana inn í stutterma­bol og spurði hvar for­eldr­ar henn­ar væru. Hún sagði að pabbi henn­ar væri í vinn­unni en mamma henn­ar væri uppi,“ sagði hann í maí.

Þá lýsti hann því einnig að hafa hlúð að konu sem lést í örmum hans. „Hún var á sjö­tugs­aldri og sagðist hafa komið á tón­leik­ana með fjöl­skyld­unni. Ég hef ekki hætt að gráta, þetta voru tón­leik­ar ætlaðir börn­um. Ég get ekki hætt að hugsa um öskrin og lykt­ina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert