Særði sjö með hnífi

Borgin Surgut í Rússlandi.
Borgin Surgut í Rússlandi. Af Wikipedia

Maður vopnaður hnífi réðst á fólk í rússneska bænum Surgut í morgun og særði að minnsta kosti sjö. Lögreglan hefur skotið árásarmanninn til bana.

Árásin átti sér stað á götu í bænum og segir lögreglan að hann hafi gengið um og stungið vegfarendur af handahófi. Að minnsta kosti tveir eru alvarlega særðir.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að hún hafi skotið árásarmanninn og „gert hann óvirkan“.

Yfirvöld í Surgut hafa beðið fólk um að sýna stillingu og hvetja fjölmiðla til að byggja fréttir sínar á staðfestum upplýsingum. Lögreglan segir mögulegt að árásarmaðurinn hafi glímt við veikindi.

Borgin Surgut er í norðausturhluta Rússlands. Íbúar borgarinnar eru um 350 þúsund talsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert