Auka viðbúnað eftir árásirnar

Öryggisgæsla hefur þegar verið aukin.
Öryggisgæsla hefur þegar verið aukin. AFP

Spænsk yfirvöld munu auka viðbúnað á fjölförnum stöðum eftir hryðjuverkaárásirnar í Barcelona og Cambrils í vikunni. Fjórtán eru látnir eftir árásirnar, sem hryðjuverkasamtökin Ríki íslams hafa lýst yfir ábyrgð á.

Yfir 130 slösuðust í árásunum, og eru 53 þeirra enn á sjúkrahúsi. Þrettán eru í lífshættu, en 78 hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsi.

Sorg ríkir í Barcelona.
Sorg ríkir í Barcelona. AFP

Innanríkisráðherra Spánar, Juan Ignacio Zoido, hefur staðfest að öryggisgæsla verði aukin á vinsælum ferðamannastöðum og á viðburðum sem draga að sér fjölda fólks.

Spænskir miðlar hafa einnig sagt að öryggisgæsla við landamærin til Frakklands verði aukin. Síðustu daga hefur franska lögreglan jafnframt verið með herta gæslu gagnvart fólki sem kemur frá Spáni, en eins hryðjuverkamannanna er enn leitað.

Hert öryggisgæsla verður á Camp Nou-leikvangnum í Barcelona í dag, en búist er við því að um hundrað þúsund manns verði þar á fyrsta leik keppnistímabilsins gegn Real Betis.

Fyrir leikinn verður hinna látnu minnst með mínútuþögn. Þá verða liðsmenn knattspyrnuliðs Barcelona með svört armbönd og í sérstökum treyjum þar sem katalónsku orðin fyrir „Við erum öll Barcelona“ verða rituð.

Younes Abouyaaqoub er talinn hafa ekið bílnum á fólkið í …
Younes Abouyaaqoub er talinn hafa ekið bílnum á fólkið í Barcelona. AFP

Einn hryðjuverkamannanna er enn á flótta, en lögregla leitar hans nú um alla Katalóníu. Er það hinn 22 ára gamli You­nes Abouya­aqoub, sem er talinn hafa verið ökumaður sendi­ferðabílsins var ekið var á hóp fólks á Römblunni.

Í fyrstu var talið að hinn sautján ára gamli Moussa Ouka­b­ir hefði ekið bíln­um. Lög­reglu­stjór­inn Josep Tra­pero hefur hins vegar sagt að nú sé kenn­ing­in sú að Abouya­aqoub hafi ekið bíln­um, ekki Ouka­b­ir.

Ouka­b­ir er grunaður um að hafa notað skil­ríki bróður síns til að leigja sendi­bíl­inn sem síðar var ekið á mann­fjöld­ann. Hann leigði einnig ann­an bíl sem fannst nokkr­um klukku­stund­um síðar í bæn­um Vic, norður af Barcelona. Sá er tal­inn hafa átt að þjóna hlut­verki flótta­bíls.

Lög­regl­an tel­ur að hryðju­verka­menn­irn­ir hafi ætlað sér að fremja fleiri árás­ir, en hópurinn taldi tólf manns. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert