Árásarmaðurinn er sá látni

Younes Abouyaaqoub.
Younes Abouyaaqoub. AFP

Lögreglan í Katalóníu hefur staðfest að maðurinn sem var skotinn til bana fyrr í dag sé Younes Abouyaaqoub, sem er grunaður um að hafa ekið sendiferðabíl á gangandi vegfarendur í Barcelona í síðustu viku.

Þrettán manns fórust og fjöldi særðist í hryðjuverkaárásinni í Barcelona. 

Líklegt var talið að Abouyaaqoub hafi verið sá sem lögreglan skaut til bana og núna hefur það verið staðfest. 

AFP

Fjórum dögum eftir að hafa ekið sendiferðabílnum eftir Römblunni skaut lögreglan manninn til bana í þorpinu Subirats um 60 kílómetrum vestur af Barcelona.

Abouyaaqoub var með sprengjubelti á sér en ekki er ljóst hvort það var ekta.

Roser Ventura, sem starfar á vínekru skammt frá, sagðist við AFP-fréttastofuna hafa séð um 20 lögreglubíla aka framhjá með sírenum, auk þess sem þyrlur sveimuðu yfir svæðinu.

Um 300 manns búa í Subirats.

Arnau Gomez, sem býr skammt frá, sagði þorpið vera tilvalinn felustað vegna þess hversu afskekkt það er.

Lögreglan á veginum þar sem Younes Abouyaaqoub var skotinn til …
Lögreglan á veginum þar sem Younes Abouyaaqoub var skotinn til bana. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert