Solberg boðar til stjórnarviðræðna

Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Hægriflokksins.
Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Hægriflokksins. AFP

„Við höfum hlotið umboð fyrir næstu fjögur ár,“ sagði Erna Solberg leiðtogi norska Hægri flokksins þegar úrslit norsku þingkosninganna lágu fyrir. Ljóst þykir að Solberg verði áfram forsætisráðherra þegar búið er að telja  95,1% atvæða á landsvísu.

Hægri­ flokk­arn­ir hafa nú fengið sam­an­lagt 1,408.592 atkvæða, en vinstri­ flokk­arn­ir 1,416.085. Það gef­ur hægri­ flokk­un­um sam­tals 89 þing­sæti en vinstri­ flokk­un­um 80 sæti.

Flokk­arn­ir fjór­ir tapa all­ir fylgi sem og Verka­manna­flokk­ur­inn sem hef­ur verið helsti stjórn­ar­and­stöðuflokk­ur­inn. Hinir vinstri­flokk­arn­ir sem mæl­ast með þing­menn inni bæta all­ir við sig. Þar á meðal rót­tæki vinstri­flokk­ur­inn Rødt sem var ekki með þing­menn fyr­ir. Flokk­ur­inn mæl­ist með einn þing­mann. Mestu bæt­ir Miðflokk­ur­inn við sig.

„Okkar markmið var að Noregur fengi nýja stjórn. Við vissum að þetta yrði erfitt verkefni. Vinstri hliðin hefur bætt sig en það dugar ekki til, Jonas Gahr Støre leiðtogi Verkamannaflokksins þegar úrslit lágu fyrir.

Solberg hefur þegar boðið hægri flokkunum fjórum til stjórnarviðræðna, en norska ríkisútvarpið NRK segir henni þó ekki endilega eiga eftir að reynast auðvelt að mynda stjórn. Þannig hafi Kristilegi þjóðarflokkurinn, sem varði minnihlutastjórn Hægriflokksins og Framfaraflokksins falli ásamt Frjálslynda flokknum, gefið upp að hann ætli sér ekki að vera stuðningsflokkur að þessu sinni.

Konur í fyrsta skipti fleiri en 40%

Meðal annarra úrslita í kosningunum er að 70 konur munu sitja á norska þinginu á næsta kjörtímabili og verður hlutfall kvenna á þinginu þá í fyrsta skipti hærra en 40%. Einnig var sett met varðandi hlutfall þingkvenna á síðasta kjörtímabili, þegar 67 konur komust á þing.

Hlutfall þingkvenna á Alþingi hér á landi er 48% og hafa þær aldrei verið fleiri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert