Talið er að um 850 þúsund manns muni smitast af kóleru sem geisar í hinu stríðshrjáða landi Jemen í lok þessa árs. Fyrr á árinu var talið að hópurinn yrði ekki svona stór heldur um 600 þúsund en nú þegar eru þeir sem hafa smitast af kóleru orðnir 647 þúsund. Þetta kemur fram í tölum frá Rauða krossinum.
„Við höfum ekki stjórn á þessu og náum ekki að hefta útbreiðsluna,“ segir Robert Mardini, starfsmaður Rauða krossins. Helstu smitleiðir kóleru eru með vatni. Kólera veldur heiftarlegum niðurgangi.
Innviðir landsins eru í lamasessi eftir ríflega tveggja ára borgarastríð í landinu. Þúsundir hafa látist og milljónir eru á vergangi í landinu vegna stríðsástandsins. Stjórnarherinn nýtur stuðnings Sádi-Araba í hernaði sínum en uppreisnarmenn Húta, minnihlutahóps í norðurhluta landsins, eru sagðir njóta stuðnings Írana. Það hafa þeir þó aldrei staðfest.
Þetta er stærsti kólerufaraldur sem geisar í heiminum. Sárlega vantar fólk til að starfa í heilbrigðisþjónustunni og dæmi um að fjölmargir starfsmenn hafi unnið launalaust í ár.
Að minnsta kosti 2.065 hafa látist af völdum kóleru í landinu auk þeirra hafa yfir 8.400 manns látist í borgarastríðinu í Jemen, samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum.