Svipti sig lífi vegna eineltis

Breskur strákur tók sitt eigið líf eftir eitt ár af …
Breskur strákur tók sitt eigið líf eftir eitt ár af líkamlegri og andlegri misnotkun í raun- og netheimum. AFP

15 ára breskur strákur tók sitt eigið líf eftir að hafa verið lagður í einelti. Foreldrar stráksins, sem hét Brandon Rayat, segja hann hafa orðið fyrir barðinu á eineltisseggjum vegna útlits síns, hann hafi verið mjög aðlaðandi og notið hylli meðal margra stelpna.

Brandon hengdi sig í svefnherberginu sínu eftir að hafa setið undir ofsóknum frá öðrum unglingum sem kölluðu hann barnaníðing og sendu honum skilaboð í gegnum samfélagsmiðla undir dulnefni þar sem þeir hótuðu að nauðga móður hans.

Eftir eitt ár af líkamlegri og andlegri misnotkun í raun- og netheimum gat Brandon ekki hugsað sér að mæta í skólann í heimabæ sínum Leicester og neitaði að yfirgefa heimili sitt af ótta við að mæta gerendum eineltisins. Foreldrar Brandon greina frá þessu í samtali við The Telegraph.

Móðir hans, Mina, hafði sagt upp starfi sínu sem hárgreiðslukona og einbeitt sér að því að aðstoða son sinn. „Gerendurnir komust inn í höfuðið á honum og drógu úr honum allan lífsvilja, þetta var ekki lengur Brandon,“ segir Mina.

Foreldrarnir áttuðu sig á alvarleika málsins þegar Brandon brotnaði niður einn daginn. „Hann kom hlaupandi heim og öskraði í sífellu: „Ég vil deyja, ég vil deyja!“ Ég hafði aldrei séð hann áður svona,“ segir Mina. Í framhaldinu fékk Brandon sálfræðiaðstoð og lauk nokkrum tímum hjá sálfræðingi.

Í skýrslu dánarstjóra sem nýverið kom út er það staðfest að Brandon hafi tekið sitt eigið líf. Foreldrar Brandon hafa gagnrýnt að hann hafi ekki fengið viðeigandi aðstoð í heilbrigðiskerfinu þar sem hann hafi greint sálfræðingi sínum frá því 11 dögum fyrir andlát sitt að hann hefði reynt að fremja sjálfsvíg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert