Íbúar fluttir á brott á Balí

Agung eldfjallið á Bali.
Agung eldfjallið á Bali. AFP

Tæplega 50 þúsund íbúar á Balí hafa verið fluttir á brott af heimilum sínum af ótta við að eldfjallið Agung fari að gjósa. 

Upplýsingafulltrúi almannavarna á eyjunni, Sutopo Purwo Nugroho, segir að alls hafi 48.540 íbúar verið fluttir á brott.

Viðbúnaðurinn hefur ekki enn haft nein áhrif á helstu ferðamannastaði eða flugsamgöngur við indónesísku eyjuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert