Fundu gríðarlegt magn skotvopna

Heimili árásarmannsins í Nevada.
Heimili árásarmannsins í Nevada. AFP

Tala látinna í skotárás í Las Vegas er komin upp í 59 manns og 527 manns eru særðir. Á heimili ársármannsins Stephen Paddock í Nevada fundust 18 skotvopn, sprengiefni og nokkur þúsund skot ásamt rafmagnsbúnaði sem verður skoðaður nánar. Þetta staðfesti Joseph Lombardo lögregluvarðstjóri. 

Fregn­ir hafa borist um að að minnsta kosti tíu riffl­ar hafi fund­ist á hót­el­her­bergi hans en þær hafa ekki verið staðfest­ar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert