Ósent sms gild erfðaskrá

AFP

Ástralskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að ósend drög að sms skilboðum sem fundst í síma látins manns sé gild erfðaskrá. Maðurinn skrifaði drögin áður en hann svipti sig lífi og arfleiddi bróður sinn og frænda að öllum eigum sínum.BBC greinir frá. 

Í skilaboðunum útlistaði hinn látni upplýsingar um bankareikning sinn og sagði frá því að hann hefði falið reiðufé í húsinu. Þá óskaði hann eftir því að öskunni yrði dreift í bakgarði sínum. 

Eiginkona mannsins mun hafa sóst eftir því að stjórna eignum hans og bar hún því við að skilboðin gætu ekki talist gild erfðaskrá þar sem að þau voru aldrei send, en venju samkvæmt þar erfðaskrá í Ástralíu að vera undirrituð og vottuð að því er kemur fram í fréttinni. 

Dómari komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að vilji hins látna væri skýr af texta skilaboðanna og að hann hafi verið vel meðvitaður um hvað hann væri að gera. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert