Annars manns leitað í tengslum við árásina

Bandaríska alríkislögreglan óskar eftir upplýsingum um Mukhammadzoir Kadirov.
Bandaríska alríkislögreglan óskar eftir upplýsingum um Mukhammadzoir Kadirov. AFP

Bandaríska alríkislögreglan leitar nú annars manns frá Úsbekistan í tengslum við árásina á Manhattan í New York í gær. Lögreglan óskar eftir upplýsingum um mann að nafni Mukahammadizoir Kadirov sem er 32 ára gamall.  

Lögð hefur verið fram kæra á hendur árásarmanninum Sa­yfullo Saipov sem ók á hóp fólks í Man­hatt­an í New York í gær með þeim af­leiðing­um að átta manns lét­ust og ell­efu særðust. Hann hafði und­ir­búið árás­ina í marg­ar vik­ur.  

Hann er einnig frá Úsbekistan. Hann virt­ist einnig hafa tengsl við fólk sem hafði verið rann­sakað í tengsl­um við hryðju­verk­a­starf­semi, að því er New York Times greindi frá fyrr í dag.

 

Maðurinn er einnig frá Úsbekistan.
Maðurinn er einnig frá Úsbekistan. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert