Loka skólum vegna loftmengunar

Búið er að fyrirskipa lokun allra skóla í Delhi, höfuðborg Indlands, eftir að loftmengun í borginni mældist 70 sinnum yfir mörkum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Hafa læknar í borginni varað við því að neyðarástand sé hér á ferðinni.

Mikil skelfing greip um sig í Del­hi í gær er borgarbú­ar vöknuðu í þykku meng­un­ar­skýi.

AFP segir þykka mengunarþoku liggja yfir öllu, og hylja nú margir vit sín með vasaklútum eða hálsklútum á ferð sinni um borgina.

Á vef bandaríska sendiráðsins í Delhi kom fram að um 700 sótagnir, svonefndar PM 2,5, mældust nú á hvern rúmmetra sem er 70 sinnum yfir mörkum WHO.

Indverskur lögreglumaður hylur andlit sitt með vasaklút á ferð sinni …
Indverskur lögreglumaður hylur andlit sitt með vasaklút á ferð sinni um götur Delhi vegna mikillar loftmengunar. AFP

„Þegar ég kom til Delhi árið 1984 var loftið í borginni hreint. En í morgun klukkan fjögur þegar ég lagði af stað í vinnu sá ég varla handa minna skil,“ sagði tesalinn Jeevanand Joshi.

„Þetta er ekki þoka, þetta er reykur og hann er alveg örugglega að gera okkur veik.“

Ind­versku lækna­sam­tök­in (IMA) hafa lýst yfir heilsu­fars­legu neyðarástandi og hvetja stjórn­völd til að gera allt sem á þeirra valdi er til að „vinna bug á ógn­inni“. Þá hefur ind­verska veður- og lofts­lags­stof­nunin varað við því að ástandið eigi eftir að versna enn frekar á næstu dögum.

Auk þess að loka öllum skólum í borginni hefur einnig verið lagt bann við öllum leik og frístundastarfi utandyra á meðan mengunin er í þessu magni.

Um 20 milljónir manna búa í Delhi, sem telst mengaðasta borg í heimi og slær þar jafnvel Peking við. Frá því að WHO sýndi fram á umfang vandans árið 2014 hafa yfirvöld gripið til aðgerða eins og að loka orkuverum tímabundið og gert tilraun með að draga úr umferð á götum borgarinnar, en þessar tímabundnu aðgerðir hafa haft lítil áhrif til þessa.

Kona sópar götu i Delhi. Loftmengunin í borginni er nú …
Kona sópar götu i Delhi. Loftmengunin í borginni er nú 70 sinnum meiri en viðmið WHO heimila. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert