Móðir barnsins einnig látin

Sænska lögreglan rannsakar málið. Mynd úr safni.
Sænska lögreglan rannsakar málið. Mynd úr safni. AFP

Móðir barnsins sem fannst látið í úthverfi Stokkhólms, Tullinge, í morgun er einnig látin.

Konan lést á sjúkrahúsi, að því er Expressen greindi frá. Lögreglan rannsakar málið sem morð.

Lögreglan í Stokkhólmi er stödd í íbúð í Tullinge. Lars Byström, talsmaður lögreglunnar, segir óvissu ríkja um hvað gerðist. Rannsókn er í fullum gangi. 

„Þetta er mjög rólegt hverfi. Ég er mjög undrandi. Það hefur verið eitthvað um innbrot að undanförnu en ekkert meira en það,” sagði Anders Lindholm sem hefur búið í Tullinge í sautján ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert