„Staðan er slæm“

Fjölmargir hafa sent 44 manna áhöfn San Juan skilaboð.
Fjölmargir hafa sent 44 manna áhöfn San Juan skilaboð. AFP

Argentínski sjóherinn greindi frá því í dag að hann rannsaki nú hljóð sem heyrðist í Atlantshafinu undan ströndum Argentínu nokkrum klukkustundum eftir síðustu samskipti við kafbátinn San Juan.

Ekkert hefur spurst til bátsins og 44 manna áhafnar síðan á miðvikudaginn fyrir viku en samkvæmt talsmanni hersins mun súrefnið brátt þverra.

Enrique Balbi, talsmaður hersins, sagði að hljóðið hefði heyrst um þremur klukkustundum eftir síðustu samskiptin við menn um borð í bátnum. Hljóðið hefði heyrst um 48 kílómetrum fyrir norðan síðustu staðsetningu bátsins sem vitað er um.

Aðspurður svaraði Balbi því neitandi að hljóðið hefði getað verið sprenging.

„Staðan er slæm og hún fer versnandi eftir því sem tíminn líður,“ sagði Balbi. San Juan var leið frá her­stöð á Tierra del Fu­ego-eyja­klas­an­um suður af Arg­entínu til heima­hafn­ar í borg­inni Mar del Plata í norðaust­ur­hluta lands­ins. Stjórn­stöð hers­ins missti hins veg­ar sam­band við hann 15. nóv­em­ber.

Í síðustu sam­skipt­um skip­stjór­ans og stjórn­stöðvar hers­ins kom fram að vél­ar­bil­un hefði orðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert