Mugabe „nokkuð kátur“

Robert Mugabe er orðinn 93 ára.
Robert Mugabe er orðinn 93 ára. AFP

Frændi Roberts Mugabe, fyrrverandi forseta Simbabve, segir að frændi sinn sé við góða heilsu og „nokkuð kátur“ eftir að hafa loks látið undan þrýstingi og sagt af sér í vikunni. Mugabe hélt um stjórnartaumana í landinu í 37 ár. Hann ætlaði sér að sitja lengur á forsetastóli en herinn greip þá til sinna ráða. 

„Honum líður vel. Ég hef hitt hann og hann er nokkuð kátur,“ segir Leo Mugabe, systursonur forsetans fyrirverandi. „Hann hlakkar í rauninni til þessa nýja kafla í lífinu sínu, að stunda búskap og eyða tíma á heimili sínu á landsbyggðinni. Hann hefur tekið þessu öllu vel.“

Leo Mugabe vildi ekki tjá sig um hvort rétt væri að Mugabe hafi fengið 10 milljóna dollara, um 1 milljarð króna, í starfslokasamning. Hann sagði hins vegar frá því að eiginkona Mugabes, Grace, hafi í hyggju að reisa háskóla í hans nafni. „Hún er nú alltaf hjá honum. Hún er ótrúleg manneskja.“

Bygging háskólans, sem samþykkt var af ríkisstjórn landsins í ágúst, hefur verið harðlega gagnrýnd því efnahagur landsins er rjúkandi rúst eftir valdatíma Mugabes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert