Einlægir endurfundir

Fagnaðarfundir.
Fagnaðarfundir. Skjáskot/YouTube

Eftir að hafa týnst og verið í dýraathvarfi í þrjú ár er hún frekar feimin er hún hittir eigandann. Í fyrstu þefar hún varfærnislega út í loftið og fikrar sig svo smám saman nær. Þegar hún áttar sig á því hver er þarna á ferð æsast hins vegar leikar og allt ætlar um koll að keyra innan skamms.

Myndband af endurfundum tíkur og eiganda hennar, sem hin vinsæla dýrasíða The Dodo hefur birt, hefur kallað fram tár á hvarmi hjá mörgum.

Ekki kemur fram hvar í heiminum endurfundirnir eru en kærleikur milli dýra og manna þekkir svo sem engin landamæri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert