Taka mál Macchiarini upp að nýju

Paolo Macchiarini.
Paolo Macchiarini.

Ríkissaksóknari Svíþjóðar ætlar að skoða mál ítalska skurðlæknisins Paolo Macchiarini að nýju. Þar á meðal ákæru sem fallið var frá á hendur honum varðandi manndráp.

Saksóknari í Gautaborg mun rannsaka fjögur mál á hendur Macchiarini þrátt fyrir að aðeins tveimur þeirra hafi verið áfrýjað til ríkissaksóknara, segir í frétt DN.

Í október féll Jennie Nordin ríkissaksóknari frá ákæru á hendur Macchiarini þar sem ekki væri hægt að sanna að plast­bark­inn hefði valdið dauða sjúk­ling­anna, né að hann hafi vilj­andi valdið þeim skaða. Nordin sagði ljóst að um vanrækslu hafi verið að ræða á Karólínska-sjúkra­hús­inu og brotið hafi verið gegn læknaeiðnum.

Niðurstaða Nordin hefur verið harðlega gagnrýnd, sérstaklega þegar ljóst var að tveir þeirra sem ábyrgðust Macchiarini hafi brotið gegn betri vitund og að þeir hafi verið hluti af starfshópi Macchiarini og því hlutdrægir.

Í gær greindi Karin Lundström Kron héraðssaksóknari frá því að málið verði allt endurskoðað áður en ákvörðun verður tekin um hvort ákært verði að nýju eða ekki.

Sænsk siðanefnd komst að þeirri niðurstöðu að Macchiarini og meðhöfundar hans að vísindagreinum um plastbarkaígræðslur hefðu gerst sekir um misferli við greinaskrifin. Íslensku læknarnir Tómas Guðbjartsson, starfsmaður Landspítala og Háskóla Íslands, og Óskar Einarssonar, starfsmaður Landspítala, voru meðhöfundar greinar sem fjallaði um rannsóknina á ATB.

Í síðasta mánuði voru birtar niður­stöður óháðrar rann­sókn­ar­nefnd­ar Há­skóla Íslands og Land­spít­ala um plast­barka­málið. Í nefnd­inni sátu Páll Hreins­son, dóm­ari við EFTA-dóm­stól­inn, Georg Bjarna­son, krabba­meins­lækn­ir og vís­indamaður í Kan­ada, og María Sig­ur­jóns­dótt­ir, sér­fræðing­ur í geðlækn­ing­um í Nor­egi.

Þar kom fram að Erítreumaðurinn Andemariam Teklesenbet Beyene fékk þær röngu upplýsingar að plastbarkaaðgerð væri eina læknandi meðferðin í boði er hann glímdi við krabbamein.

Nefndin rannsakaði mál áðurnefnds Beyene, sem var sendur frá Íslandi til Svíþjóðar til meðferðar í júní 2011. Var þar græddur í hann plastbarki á Karolinska-háskólasjúkrahúsinu. Hann lést í janúarmánuði árið 2014.

Aðgerðin var gerð af ítalska lækninum Paolo Macchiarini. Hann græddi plastbarka í alls átta sjúklinga, þrjá í Svíþjóð og fimm í Rússlandi. Af þessum átta eru sjö látnir, að því er fram kemur í frétt Morgunblaðsins um skýrsluna á sínum tíma.

Meðal helstu spurninga sem íslenska nefndin leitaðist við að svara var hvort ákvarðanir íslenskra heilbrigðisstarfsmanna í tengslum við plastbarkaígræðsluna hefðu verið í samræmi við lög, reglur og verkferla og gæðakröfur í heilbrigðisþjónustu.

Vísað er til samskipta Macchiarini og Tómasar fyrir aðgerðina. Rifjað er upp að Tómas hafi skrifað „Sjúkratryggingum Íslands umsókn, þar sem möguleika um barkaígræði er getið. Þá breytti Tómas lýsingu sinni og mati á sjúkrasögu Bayene í tilvísun sinni til Karolinska sjúkrahússins að ósk Macchiarinis, í þeirri trú að tilgangurinn væri að afla samþykkis siðanefndar fyrir aðgerðinni,“ segir m.a. í niðurstöðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert