Vladimír Pútín, forseti Rússlands, kallar eftir hagnýtu samstarfi við Bandaríkin í nýárskveðju sinni til Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. AFP-fréttastofan greinir frá.
Pútín sagði við Trump að uppbyggilegt samtal á milli Rússlands og Bandaríkjanna væri sérstaklega nauðsynlegt til að tryggja hernaðarlegan stöðugleika í heiminum í dag.