Trump segir „heiminn fylgjast með“

AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur fordæmt handtöku yfir mótmælenda í Íran sem mótmæltu stjórnvöldum í landinu. Hann sagði að „heimurinn fylgdist með“ viðbrögðum við mótmælunum. AFP-fréttastofan greinir frá.

Mótmælin hófust á fimmtudag en hafa breiðst út til nokkurra borga í ríkinu. Upp­runa­leg ástæða mót­mæl­anna eru al­menn­ar verðhækk­an­ir. Stjórn for­set­ans, Hass­an Rou­hani, hef­ur til að mynda tvö­faldað verð á eggj­um. Nú hafa mót­mæl­in stig­magn­ast í fjölda­mót­mæli gegn klerka­stjórn­inni og stefnu stjórn­valda.

„Fréttir berast af friðsamlegum mótmælum íranskra ríkisborgara sem eru komnir með nóg af spillingu og sóun á auðæfum landsins í fjármögnun hryðjuverkastarfsemi erlendis,“ skrifaði Trump á Twitter. „Stjórnvöld í Íran ættu að virða rétt rétt fólksins, þar á meðal rétt þeirra til að tjá sig. Heimurinn fylgist með!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert