Viðræður fyrirhugaðar á Kóreuskaga

Cho Myoung-Gyon, sameiningarráðherra Suður-Kóreu, ræðir við fjölmiðla í Seoul í …
Cho Myoung-Gyon, sameiningarráðherra Suður-Kóreu, ræðir við fjölmiðla í Seoul í dag. AFP

Suður-Kóreumenn hafa lagt til að viðræður verði haldnar á milli embættismanna þeirra og nágranna þeirra í Norður-Kóreu á landamærum ríkjanna í næstu viku.

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, lagði til í nýársávarpi sínu að ríkin myndu reyna að slaka á spennunni sín á milli og eiga samtal, meðal annars um þátttöku Norður-Kóreu á Vetrarólympíuleikunum, sem fara fram í Pyeongchang í Suður-Kóreu í febrúar.

Nú hafa Suður-Kóreumenn svarað þeirri bón á jákvæðan hátt.

Cho Myoung-gyon sameiningarráðherra Suður-Kóreu og helsti tengiliður þeirra við nágrannana í norðri, lagði til að fundur yrði haldinn í Panmunjom, þorpi sem liggur við landamæri ríkjanna, strax í næstu viku.

Fundurinn yrði sóttur af háttsettum embættismönnum frá báðum ríkjum.

„Við vonum að við getum sest niður og átt hreinskiptar umræður,“ sagði Cho á blaðamannafundi fyrr í dag.

Ef Norður-Kórea tekur vel í þessar umleitanir frá suðri verða þetta fyrstu opinberu viðræðurnar á milli ríkjanna tveggja í tvö ár.

Suður-Kóresk stjórnvöld vonast til þess að viðræður geti leitt til aukinnar þýðu í samskiptum ríkjanna á Kóreuskaga, eftir mikla spennu og stríðsógn síðustu árin vegna kjarnorkuáætlunar Norður-Kóreu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert