Öryggisráðið ræðir ástandið í Íran

Neyðarfundir í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eru orðnir ansi tíðir. Á …
Neyðarfundir í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eru orðnir ansi tíðir. Á morgun mun ráðið koma saman og ræða mótmælin gegn stjórnvöldum í Íran. AFP

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman á neyðarfundi á morgun, föstudag, til að ræða öldu mót­mæla sem staðið hafa yfir í Íran í eina viku.

21 hefur lát­ist í mótmælunum sem hafa farið fram í borgum víðs vegar í Íran. 

Stjórnvöld í Rússlandi hafa gagnrýnt afskiptasemi Bandaríkjanna í málefnum Írans og að mótmælin verði tekin til umræðu í öryggisráðinu. Óljóst er hvort fulltrúar Rússa í ráðinu muni reyna að koma í veg fyrir að fundurinn fari fram. 

Áætlað er að fundurinn fari fram klukkan 15 að staðartíma, eða klukkan 20 að íslenskum tíma, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúa Kasakstan, sem fer með formennsku í ráðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert