Ísraelar gera loftárásir á Sýrland

Frá Sýrlandi í gær.
Frá Sýrlandi í gær. AFP

Ísraelsher gerði loftárásir og skaut eldflaugum á skotmörk í Sýrlandi í nótt. Töluverðar skemmdir urðu á mannvirkjum vegna árásanna sem beindust gegn hernaðarmannvirkjum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sýrlenska hernum. Sýrlenski herinn segist hafa hæft ísraelska herflugvél en ekki er greint nánar frá atvikinu í tilkynningunni. Eins hefur ekki verið upplýst um hvar í Sýrlandi árásirnar voru gerðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert