Þrír hafa látið lífið í óveðrinu sem gengur nú yfir Holland og Þýskaland. Slys sem rekja má til stormsins hafa orðið þremur að bana. Fólkið varð ýmist undir tré eða lést sökum þungs braks sem tókst á loft í storminum og lenti á því.
Þá er ökumaður bifreiðar alvarlega slasaður eftir að tré féll ofan á bíl hans á vegi skammt fyrir utan borgina Moers í vesturhluta Þýskalands.
Vindhviður hafa farið upp í 40 metra á sekúndu og hefur óveðrið haft mikil áhrif á samgöngur. Opnað hefur verið fyrir flugumferð á ný í Schiphol-flugvelli í Amsterdam, en hann var lokaður tímabundið í morgun vegna óveðursins. Þá hafa miklar tafir orðið á lestarsamgöngum í norðvesturhluta Þýskalands.
Frétt mbl.is: Búið að opna fyrir flugumferð
Hollenskir Twitter-notendur hafa birt myndir af vörubílum og trjám sem hafa fokið á hliðina á vegum landsins undir myllumerkinu #coderood. Samkvæmt upplýsingum frá innlendri samgöngusíðu hafa 17 vörubílar fokið á hliðina í óveðrinu.
Í frétt BBC kemur fram að lögreglan hafi lokað allri umferð um miðbæ Almere, um 200 þúsund manna borgar austur af Amsterdam.
Á meðfylgjandi myndbandi má sjá hversu kröftugar vindhviðurnar eru:
"Is it windy today?"
— Tommaso Tani (@ttan_) January 18, 2018
"nah, just some gust".
Welcome to #Netherlands. #CodeRood pic.twitter.com/NAr7yAiruG