Greint var frá því í morgun að dómstóll í Írak hefði dæmt þýska konu af marokkóskum ættum til dauða. Konan var fundin sek um að tilheyra hryðjuverkasamtökunum Ríki íslams.
Hún var dæmd fyrir að „styðja samtökin og hjálpa þeim að fremja glæpi“, sagði Abdel Settar Bayraqdar, talsmaður dómstólsins, í morgun.
Konan verður hengd en í september í fyrra dæmdi dómstóll í Írak rússneskan mann til dauða eftir að hafa komist að þeirri niðurstöðu að hann berðist fyrir Ríki íslams.