Faðir stúlkunnar handtekinn

Mynd af Mylee Billingham sem faðir hennar, Bill Billingham, birti …
Mynd af Mylee Billingham sem faðir hennar, Bill Billingham, birti á Facebook skömmu áður en stúlkan var stungin.

Faðir átta ára stúlku sem stungin var til bana í West Midlands á Bretlandseyjum á laugardag hefur verið handtekinn grunaður um ódæðið. Faðirinn var sjálfur fluttur á sjúkrahús með stungusár á kviði. 

Lögreglan var kölluð að húsi í Brownshill í West Midlands á laugardagskvöldið. Er að var komið fundust stúlkan og faðirinn þar í blóði sínu. Þau voru bæði flutt á sjúkrahús en stúlkan lést skömmu síðar af sárum sínum. 

Í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar um málið segir að skömmu áður en lögreglan var kvödd á vettvang hafi faðirinn birt mynd af dóttur sinni á Facebook. Á henni sást hún sitja í rúmi, brosandi með pitsu fyrir framan sig.

Enn hefur ekki verið hægt að yfirheyra föðurinn. 

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert