Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hvatt Erdogan, forseta Tyrklands, til að takmarka árásir hersveita sinna gegn Kúrdum í norðurhluta Sýrlands.
Hvíta húsið greindi frá þessu.
Í símaspjalli bað Trump Erdogan um að draga úr árásum á þorp Kúrda í Afrin-héraði og lýsti áhyggjum yfir and-bandarískri umræðu í Tyrklandi sem hann sagði vera bæði neikvæða og ranga.
Trump hvatti Erdogan einnig til að forðast meiðsli óbreyttra borgara.
Yfir tvö þúsund bandarískir hermenn eru staddir í Sýrlandi, flestir á svæði sem er einnig undir stjórn Verndarsveita Kúrda, YPG.
Hernaðaraðgerðir Tyrkja hafa mælst illa fyrir hjá bandalagsþjóðum þeirra í NATO, þar á meðal Bandaríkjamönnum og Frökkum.
Bandaríkjastjórn lítur á YPG sem mikilvægan bandamann í baráttunni gegn Ríki íslams. Óttast er að árásir Tyrkja verði til þess að stríðið í Sýrlandi dragist enn frekar á langinn en í mars verða sjö ár liðin síðan mótmælin gegn forseta landsins hófust.