Yfir sjötíu bíla árekstur

Bílarnir bókstaflega stöfluðust upp í árekstrinum.
Bílarnir bókstaflega stöfluðust upp í árekstrinum.

Samgöngumálayfirvöld í Iowa hafa birt opinberlega myndskeið úr umferðarmyndavél sem sýnir þegar yfir sjötíu bílar lentu í árekstri á hraðbraut í Iowa á mánudag. Hríðarbylur geisaði og mikil hálka var á veginum er slysið átti sér stað.

Í frétt ABC-sjónvarpsstöðvarinnar segir að einn hafi látist í árekstrinum og tíu hafi verið fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús. 

Um átján sentímetrar af jafnföllnum snjó mældust í Iowa á mánudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert