Sýrlenska ríkissjónvarpið sagði frá því í morgun að tugir „bardagamanna“ hefðu fallið í árás hernaðarbandalags leiddu af Bandaríkjamönnum. Í fréttinni kom ekki fram hvort um hermenn stjórnarhersins hefði verið að ræða.
„Í nýju áhlaupi, og í tilraun til að styðja hryðjuverkamenn, gerði hernaðarbandalagið árás,“ sagði í fréttinni. Hernaðarbandalagið sagði frá því í gær að gerð hefði verið árás á vopnaða hópa sem hliðhollir eru stjórnvöldum landsins. Kom fram að hóparnir hefðu áður gert tilefnislausar árásir á bækistöðvar uppreisnarmanna í landinu. Í frétt CNN segir að yfir hundrað hafi fallið í árás hernaðarbandalagsins.