Með kíló af kókaíni í fölskum rassi

Ljósmynd/Lögreglan í Portúgal

Portúgalska lögreglan hefur handtekið karlmann frá Brasilíu fyrir smygl á kókaíni til Portúgal en fíkniefnin fundust í fölskum rassi á buxum mannsins.

Fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC að maðurinn hafi verið handtekinn á alþjóðaflugvellinum í Lissabon, höfuðborg Portúgals, en hann hafði komið með flugi til landsins frá borginni Belém do Pará í norðurhluta Brasilíu.

Kókaínið sem maðurinn reyndi að smygla með þessum hætti vó um eitt kíló. Annar karlmaður, sem grunaður er um að hafa ætlað að taka við fíkniefninum, hefur einnig verið handtekinn. Mennirnir eru á fertugs- og fimmtugsaldri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert