Halda gögnum frá almenningi

AFP

Forystumenn Evrópusambandsins hafa verið hvattir til þess af umboðsmanni borgara sambandsins til þess að auka gegnsæi í tengslum við ákvarðanir ráðherraráðs þess. Vill umboðsmaðurinn að skráð verði afstaða einstakra ríkja Evrópusambandsins og undirbúningsgögn gerð aðgengileg fyrir almenning.

Fram kemur á fréttavefnum Euobserver.com að umboðsmaðurinn, Emily O'Reilly, telji að aukin ábyrgð ráðherra ríkja Evrópusambandsins í viðræðum í Brussel gagnvart borgurum þeirra kunni að hjálpa til við að slá á uppgang lýðhyggju innan sambandsins.

Rannsókn umboðsmannsins frá því í mars á síðasta ári bendir til þess að ráðherraráðið grefur undan rétti almennra borgara til þess að veita kjörnum fulltrúum sínum í ráðinu aðhald. Þannig léti ráðherraráðið kerfisbundið hjá líða að skrá afstöðu einstakra ríkisstjórna þegar umræður færu fram um undirbúning löggjafar.

Einnig kom fram að ráðherraráðið merkti gögn í of mörgum tilfellum sem trúnaðargögn. Framganga ráðsins þýddi að almennir borgarar í Evrópusambandinu gætu alla jafna ekki aflað sér upplýsinga jafnóðum um löggjafarmál sem væru til umfjöllunar innan þess. Umboðsmaðurinn hefur óskað svara frá ráðherraráðinu ekki síðar en í maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert