Snjóflóð féll á göngumenn í Sviss

Mikill snjóþungi getur myndast í Valais.
Mikill snjóþungi getur myndast í Valais. AFP

Að minnsta kosti tíu göngumenn urðu fyrir snjóflóði í Valais-fylki í Sviss fyrir skömmu. Snjóflóðið féll í 2.500 metra hæð í Col de Fenestral sem er vinsælt göngusvæði. BBC greinir frá. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögregluyfirvöldum á svæðinu er leit hafin að fólkinu en engar frekari upplýsingar fást að svo stöddu.

Lögreglan gaf fyrr í dag út viðvörun vegna snjóflóðahættu á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert