Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur snuprað bandarísku alríkislögregluna (FBI) fyrir að hafa hunsað viðvaranir um að Nikolas Cruz gæti framið voðaverk.
Nikolas Cruz, nítján ára Bandaríkjamaður, hefur játað að hafa orðið sautján manns að bana í skotárás á nemendur í Parkland á miðvikudag.
Cruz hafði verið vikið úr skólanum fyrir agabrot. Fyrrverandi skólabræður hans segja að það hafi ekki komið þeim á óvart að hann skuli hafa framið ódæðið því að hann hafi verið heltekinn af byssum og jafnvel átt það til að kynna sig sem „skólaskotmann“ þegar hann heilsaði fólki.
Enn fremur hefur verið skýrt frá því að fjöldamorðinginn var félagi í hreyfingu hvítra þjóðernissinna í Flórída og hafði fengið þjálfun í vopnaburði á vegum hennar. Hreyfingin kveðst þó ekki hafa staðið fyrir skotárásinni.
Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur viðurkennt að hún hafi fengið ábendingu í september síðastliðnum um að maður með notandanafnið Nikolas Cruz hafi sett inn myndskeið á YouTube þar sem hann sagðist ætla að verða „atvinnuskólaskotmaður“. FBI kveðst hafa kannað málið en segir að ekki hafi tekist að bera kennsl á þann sem setti myndskeiðið inn.
Trump segir að stofnunin sé að eyða allt of miklum tíma í að reyna að sanna afskipti Rússa af kosningabaráttu Trumps í stað þess að sinna starfi sínu.
„Það er ekkert samsæri. Farið og sinnið starfinu ykkar og gerir okkur öll stolt,“ skrifar Trump á Twitter.
Í gær tóku nemendur sem lifðu af skotárásina þátt í göngu þar sem þeir kröfðust hertra laga varðandi byssueign.
Very sad that the FBI missed all of the many signals sent out by the Florida school shooter. This is not acceptable. They are spending too much time trying to prove Russian collusion with the Trump campaign - there is no collusion. Get back to the basics and make us all proud!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) February 18, 2018