Cruz mætti fyrir dómara í dag

Nikolas Cruz mætti fyrir dóm í dag. Myndin er frá …
Nikolas Cruz mætti fyrir dóm í dag. Myndin er frá því þegar hann kom fyrir dómara í síðustu viku. AFP

Árásarmaðurinn sem er grunaður um skotárásina í Marjory Stoneman Douglas-framhaldsskólanum í Flórída mætti fyrir dómara í dag í yfirheyrslu í tengslum við málsmeðferð hans fyrir dómstólum. Sautján manns létu lífið í skotárásinni á fimmtudag.

Nikolas Cruz var niðurlútur, íklæddur appelsínugulum fangafatnaði þegar hann kom fyrir dómara í Fort Lauderdale í Flórída í dag og segir í frétt AFP um málið að þetta sé í fyrsta sinn sem hann sjáist opinberlega frá því að hann framdi skotárásina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert