Fundu mállausa stúlku á vergangi

Sky birtir þessa mynd af ungu stúlkunni.
Sky birtir þessa mynd af ungu stúlkunni.

Lögreglan í Birmingham hefur óskað eftir aðstoð almennings til að bera kennsl á mállausa stúlku sem fannst á vergangi á götum borgarinnar fyrir sex dögum.

Í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar segir að talið sé að stúlkan sé um fjórtán ára gömul. Er hún fannst að kvöldi þess 14. febrúar var hún í miklu uppnámi. Hún hélt á bleiku teppi og leikfangahundi.

Lögreglan segir að stúlkan geti ekki tjáð sig með orðum. Hún var lögð inn á sjúkrahús til aðhlynningar.

„Við þurfum að komast að því hver þessi unga stúlka er svo við getum komist í samband við ættingja hennar eða gæslumenn,“ hefur Sky eftir lögreglumanninum Ben Woodall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert