Borgaryfirvöld í Christchurch og á svæðum í grennd hafa lýst yfir neyðarástandi vegna fellibyljarins Gitu. Tugum skóla hefur verið lokað sem og götum á Suðureyju Nýja-Sjálands.
Þá hefur flugi til og frá höfuðborginni Wellington verið aflýst. Íbúar hafa verið varaðir við hættu á flóðum samhliða óveðrinu. Þá hafa þeir sem búa á miklu láglendi verið hvattir til að yfirgefa heimili sín. „Áhrifa óveðursins mun gæta mest í nótt og í fyrramálið,“ segir borgarstjóri Christchurch, Lianne Dalziel.
Herinn hefur verið kvaddur á vettvang og er í viðbragðsstöðu.
Fellibylurinn Gita fór í síðustu viku yfir Kyrrahafseyjurnar Tonga og Fiji.
#Gita now starting to lose the characteristics of a tropical cyclone, but still expected to bring severe weather to parts of New Zealand tomorrow. pic.twitter.com/duT2JO1DmJ
— Met Office Storms (@metofficestorms) February 19, 2018