111 stúlkna saknað í Nígeríu

Liðsmaður Boko Haram í myndbandi sem var birt í síðasta …
Liðsmaður Boko Haram í myndbandi sem var birt í síðasta mánuði. AFP

111 stúlkna er saknað í norðausturhluta Nígeríu eftir að liðsmenn hryðjuverkasamtakanna Boko Haram gerðu árás á skóla þeirra.

Nígeríska lögreglan greindi frá þessu.

Óttast er að annað mál í líkingu við það, þegar fjölda stúlkna var rænt í Chibok árið 2014, sé þar með komið upp.

„815 nemendur sneru aftur í skólann af þeim 926 sem eru í skólanum,“ sagði Abdulmaliki Sumonu, lögreglustjóri í ríkinu Yobe.

„Hinna er saknað. Ekki hefur verið staðfest að þeim hafi verið rænt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert