Létust í aurskriðu í Indónesíu

Flóð á Jakarta í Indónesíu 8. febrúar síðastliðinn.
Flóð á Jakarta í Indónesíu 8. febrúar síðastliðinn. AFP

Að minnsta kosti fimm manns létust og 15 er saknað eftir að aurskriða féll á hrísgrjónaakra á eyjunni Jövu í Indónesíu. Bændur voru að störfum á akrinum þegar aurskriðan féll. Mikil úrkoma hefur verið á fjallasvæðinu síðustu daga.  

14 manns slösuðust þegar aurskriðan féll. Þeir voru fluttir á nærliggjandi sjúkrahús til frekari aðhlynningar.  

Björgunarsveitir, herinn, lögreglan og sjálfboðaliðar vinna að því að grafa upp fólk á svæðinu í þeirri von um að finna fólk á lífi. Stórt svæði hefur verið rýmt og íbúum er meinað að koma á heimili sín í nágrenninu vegna hættu á frekari aurskriðum. 

Aurskriður eru algengar á þessum árstíma frá október og fram í apríl þegar mikil úrkoma er á svæðinu.  

8. febrúar síðastliðinn varð talsvart flóð á Jakarta, eyju í Indónesíu, þegar flæddi inn á fjölmörg heimili. 

Í nóvember létust 11 manns þegar aurskriða féll í kjölfar mikillar rigningar í Pacitan á austurhluta Jövu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert