Í það minnsta 32, þar af 6 börn, voru drepnir í austurhluta Ghouta-héraðs í Sýrlandi í dag. Stjórnarher Sýrlands, með stuðningi frá Rússum, heldur áfram að láta sprengjum rigna yfir svæðið.
Yfir 450 manns hafa látist í sprengjuárásum á svæðinu frá því herinn hóf áhlaup sitt þar af mikill hörku fyrir tæpri viku síðan.
Svæðið er undir stjórn uppreisnarmanna og hefur Bashar al-Assad sýrlandsforseti heitið því að ná aftur stjórn á öllum landsvæðum. Alþjóðastofnanir og þjóðarleiðtogar hafa krafist vopnahlés en slíkt hefur ekki orðið að veruleika.
Klukkan 19:30 í dag mun öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kjósa um 30 daga vopnahlé. Rússar, sem styðja og taka þátt í aðgerðum Sýrlandshers, hafa neitunarvald í öryggisráðinu.
Ómögulegt er að meta með vissu mannfallið sem orðið hefur í Sýrlandi frá því stríðið braust út fyrir sjö árum. Sameinuðu þjóðirnar telja þó að um 400 þúsund manns hafi fallið.