Sprenging og eldsvoði í Leicester

Fjórir hafa verið fluttir á sjúkrahús.
Fjórir hafa verið fluttir á sjúkrahús. mbl.is/Kristinn

Fjórir hafa verið fluttir á sjúkrahús eftir að fregnir bárust af sprengingu og eldsvoða við Hinckley Road í Leicester á Englandi.

Lögreglan sagði að „stórt atvik“ hefði átt sér stað, að sögn BBC

Búið er að loka nærliggjandi svæðum og eru björgunarstarfsmenn á vettvangi.

Svo virðist sem sprengingin hafi orðið í byggingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert