Fötluð börn í mikilli hættu

Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 360 börn hafi særst alvarlega í sprengjuárásum í Sýrlandi á síðasta ári, og mörg þeirra misst útlimi. Ætla má að raunveruleg tala sé mun hærri. 

Stríðið í Sýrlandi hefur nú staðið yfir í sjö ár og árásir á óbreytta borgara halda áfram að kosta börn lífið eða slasa þau alvarlega. Aldrei hafa fleiri börn látið lífið vegna stríðsins í Sýrlandi en á síðasta ári og á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2018 hafa 1.000 börn látið lífið eða særst alvarlega í sprengjuárásum. Þetta kemur fram í nýrri úttekt frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Ef áfram heldur sem horfir verður árið 2018 það mannskæðasta í sögu stríðsins, segir í fréttatilkynningu frá UNICEF.  

„UNICEF vekur sérstaka athygli á stöðu barna sem hlotið hafa fötlun vegna stríðsins. Sprengjum hefur verið varpað á skóla, sjúkrahús og íbúðarhverfi í Sýrlandi. Fjöldi barna hefur týnt lífi og enn fleiri særst og örkumlast. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 360 börn hafi særst alvarlega í sprengjuárásum á síðasta ári, og mörg þeirra misst útlimi. Ætla má að raunveruleg tala sé mun hærri,“ segir í fréttatilkynningu.

Hanaa lamaðist fyrir neðan mitti þegar hún varð fyrir sprengjuárás …
Hanaa lamaðist fyrir neðan mitti þegar hún varð fyrir sprengjuárás í Aleppo. UNICEF

„Þegar átök geisa eru börn með fötlun þau allra viðkvæmustu,“ segir Geert Cappelaere, svæðisstjóri UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku, í fréttatilkynningu.

Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, bendir á að börn með fötlun séu í mun meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi og eiga erfiðara með að fá aðgengi að grunnþjónustu, þar á meðal heilsuvernd og menntun.

„UNICEF einsetur sér að vernda öll börn, og sérstaklega þau allra viðkvæmustu. Börn sem hafa misst útlimi í sprengjuárásum á heimili sín og skóla þurfa aðstoð fagfólks við að vinna úr andlegum og líkamlegum áföllum og byggja upp líf sitt á ný. Endurteknar árásir á heilsugæslustöðvar og skóla hafa hindrað það að þessi börn fái þá aðstoð og þjónustu sem þau þurfa. Binda þarf enda á árásirnar og veita hjálparstofnunum óheft aðgengi að þeim börnum sem þurfa hjálp,“ segir Bergsteinn í fréttatilkynningu.   

Emine og systkini hennar á leið í skólann.
Emine og systkini hennar á leið í skólann. UNICEF.

Þrátt fyrir að stríðið hafi nú staðið yfir í sjö ár hafa átökin ekki brotið niður baráttuvilja barna í Sýrlandi.  „Þrautseigja barnanna í Sýrlandi þekkir engin mörk,“ segir Cappelaere í tilkynningu. „Þegar börn með fötlun og fjölskyldur þeirra fá þá aðstoð sem þau þurfa, þá hafa þau náð að sigrast á áskorunum sínum og náð að endurheimta barnæsku sína, reisn og drauma.“

UNICEF hefur verið í Sýrlandi fyrir stríð og verður þar áfram. Neyðaraðgerðir UNICEF í Sýrlandi og nágrannaríkjunum leggja áherslu á að ná til allra barna sem þurfa hjálp og aðstoða sérstaklega börn með fötlun.Það er meðal annars gert með því að veita börnum og fjölskyldum þeirra sálrænan og fjárhagslegan stuðning, sérhæfða þjónustu og endurhæfingu. Unnið er að því bæta aðgengi að grunnþjónustu fyrir börn með fötlun, þar á meðal heilsuvernd, menntun og barnavernd, og útvega hjálpartæki á borð við hjólastóla, gerviútlimi og stoðtæki. Auk þess vinnur UNICEF með samfélögum til að börn með fötlun séu ekki útskúfuð og einangruð.

Hægt er að styðja neyðaraðgerðirnar hér og með því að senda SMS-ið STOPP í nr 1900 (1.900 kr).

Sami missti báða fætur þegar sprengju var varpað á hann …
Sami missti báða fætur þegar sprengju var varpað á hann og vini hans. UNICEF
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert