38 létust í rútuslysi

Google

38 eru látnir í norðurhluta Eþíópíu eftir að rúta sem þeir ferðuðust með steyptist fram af háum vegkanti. Um er að ræða 28 karlmenn og 10 konur.

Ríkisfjölmiðlar greina frá slysinu og segja það hafa átt sér stað í Amhara-ríki á milli bæjanna Dessie og Mekane Selam.

10 farþegar komust lífs af, en nokkrir af þeim eru töluvert slasaðir. Flestir þeirra sem létust voru háskólanemar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert