Kyrkti unga konu í kynlífi

Wikipedia

Karlmaður hefur viðurkennt að hafa kyrkt unga konu á meðan þau stunduðu kynlíf einungis tveimur klukkustundum eftir að þau hittust í fyrsta sinn. Maðurinn, Mark Bruce, stendur frammi fyrir löngum fangelsisdómi samkvæmt frétt Daily Telegraph.

Fram kemur í fréttinni að Bruce, sem er 32 ára gamall, hafi hitt Chloe Miazek á strætisvagnabiðstöð í borginni Aberdeen í Skotlandi snemma morguns 3. nóvember á síðasta ári. Þau höfðu þá bæði verið að skemmta sér í sitt hvoru lagi um nóttina.

Miazek og Bruce munu hafa komist að því að þau höfðu bæði áhuga á kynlífi þar sem þrengt væri að öndunarvegi á meðan á því stæði. Fóru þau í kjölfarið heim til Bruce þar sem þau stunduðu slíkt kynlíf. Voru þau hafi bæði verið mjög drukkin eftir nóttina.

Talið er að Miazek hafi látist á aðeins örfáum sekúndum eftir að Bruce þrengdi að hálsi hennar. Hann sést í kjölfarið á upptökum úr eftirlitsmyndavélum ganga um götur í nágrenninu í um klukkustund áður en hann gaf sig fram við lögregluna.

Skýringar Bruce hafa komið heim og saman við rannsókn lögreglu á málinu og þau gögn sem liggja fyrir. Engin merki fundust um átök og tímasetning andlátsins samræmist rannsókn réttarmeinafræðings. Er hann ákærður fyrir manndráp af gáleysi.

Fram kemur í fréttinni að fyrrverandi unnusti Miazeks hafi staðfest að hún hafi haft áhuga á kynlífi þar sem þrengt væri að öndunarvegi. Sjálfur hafi hann alltaf neitað að stunda slíkt kynlíf þegar Miazek hafi stungið upp á því. Dómur verður kveðinn upp 5. apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert