Klámmyndaleikkonan Stormy Daniels mun mæta í réttarsal 12. júlí þar sem mál hennar gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta verður tekið fyrir. Hún höfðaði mál gegn forsetanum fyrr í mánuðinum vegna þess hún telur að þagnarsamkomulag þeirra sé ómerkt.
Lögmaður forsetans, Michael Cohen, viðurkenndi í febrúar að hann hefði greitt Daniels 130 þúsund dali, rúmlega 13 milljónir íslenskra króna, skömmu fyrir forsetakosningarnar 2016. Hann neitar þó að hann hafi borgað Daneils umrædda upphæða til að hún segði ekki frá kynferðislegu sambandi sínu með forsetanum á árunum 2006 og 2007.
Daniels hefur boðist til að endurgreiða það sem Cohen greiddi henni til að hún geti „talað opinskátt um sambandið við forsetann og tilraunir sem gerðar hafa verið til að þagga niður í henni,“ segir í yfirlýsingu frá Michael Avenatti, lögmanni hennar.
Daniels vonast einnig til að geta sýnt smáskilaboð, myndir og myndskeið sem tengjast sambandi hennar við forsetann.
„Ég held að það sé kominn tími til að hún segi sína sögu og þá getur almenningur tekið ákvörðun um hver segir satt,“ sagði Avenatti í síðustu viku.
Cohen útbjó samkomulag þar sem því er heitið að hún fái greidda 130 þúsund Bandaríkjdali frá fyrirtækinu Essential Consultants LLC ef hún þegi um sambandið við Trump. Notaði hann dulnefnin Peggy Peterson og David Dennison á samkomulagið og áttu þau Clifford og Trump að skrifa undir ásamt fulltrúa Essential Consultants.
Nokkrum dögum fyrir forsetakosningarnar í nóvember 2016 skrifaði Clifford undir og eins Cohen fyrir hönd Essential Consultants. En Trump skrifaði aftur á móti ekki undir og það þýðir að samkomulagið er ekki í gildi að sögn lögmanns hennar.