Féllst á afsögn forsætisráðherra Slóvakíu

Forseti Slóvakíu, Andrej Kiska (til hægri) fól aðstoðarforseta landsins, Peter …
Forseti Slóvakíu, Andrej Kiska (til hægri) fól aðstoðarforseta landsins, Peter Pellegrini (til vinstri), að mynda nýja ríkisstjórn eftir að forsætisráðherrann bauðst til að segja af sér vegna mótmæla í garð ríkisstjórnarinnar vegna morðs á rannsóknarblaðamanninum Jan Kuciak. AFP

Andrej Kiska, forseti Slóvakíu, hefur falið Peter Pellegrini, aðstoðarforsætisráðherra landsins, að mynda nýja ríkisstjórn.

Kiska féllst á afsagnarbeiðni Robert Fico, for­sæt­is­ráðherra Slóvakíu, í dag, en Fico hefur sætt mikilli gagnrýni eft­ir að rann­sókn­ar­blaðamaður­inn Jan Kuciak var tek­inn af lífi á heim­ili sínu í Brat­islava ásamt unn­ustu sinni í lok fe­brú­ar. Fico bauðst til að segja af sér í gær.

Frétt mbl.is: Býðst til að segja af sér í kjölfar mótmæla

„Eina ástæðan fyrir afsögn minni er til að koma í veg fyrir ringulreið í landinu og til að tryggja stöðugleika. Kosningar hefðu ekki tryggt stöðugleika,“ sagði Fico þegar hann baðst lausnar á fundi forsetans í dag.

Tugþúsundir Slóvaka hafa mótmælt aðkomu stjórnvalda að málinu en Kuciak var að rannsaka spillingu í stjórnkerfi landsins þegar hann var myrtur. Kuciak var að skrifa grein um tengsl ráðgjafa forsætisráðherrans við ítölsku mafíuna. Greinin birtist að honum látnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert